| Velkomin á heimasíðuna mína |
| Kári Steinn heiti ég og er 3 ára orkubolti ! |
|
Ég fæddist á landspítalanum í Reykjavík föstudaginn þann 19 október 2007 kl 12:12 að hádegi.Við fæðingu vóg ég 4325 gr og var 53 cm. Ég fæddist eftir 42 vikna meðgöngu uppá dag !Ég var skolhærður með blá augu þegar ég fæddist og er það ennþá í dag :) Meðgangan gekk rosalega vel og fæðingin líka. Amma Togga og pabbi voru viðstödd fæðinguna. Ég bý með mömmu minni í Setberginu í Hafnarfirði Og leikskólinn minn heitir Norðurberg og deildin mín Tröllagil Ég á marga góða vini á leikskólanum en besti vinur minn heitir Sindri og býr í sama húsi og Togga amma mín. Mér finnst rosalega gaman að leika mér með bílana mína, horfa á skemmtilegar myndir,vera úti að leika,fara í sund og margt fleira. Einnig finnst mér ótrúlega spennandi að fara á bókasafnið og taka bækur og skoða! Ég er ótrúlega lífsglaður og duglegur strákur ! |
|
|
|